Hver er þinn núllpunktur?
Hver er þinn núllpunktur? Með núllpunkti er átt við hvenær peningarnir eru búnir og ekkert eftir, núll. Augljósasta svarið er auðvitað að núllpunkti er náð þegar heimildin er fullnýtt, kortið rauðglóandi og ekkert inná “heftinu”. En það er til annar núllpunktur. Það er sú upphæð sem þú hefur sjálf(ur) fulla stjórn á. Krefst reyndar aga til að byrja með en veitist auðvelt þegar fram í sækir.
Við ákveðum upphæð, segjum 1.000 kr. Það er að segja í staðinn fyrir að debet kortið sé á núlli þá skiljum við 1.000 kr. eftir og förum ekki niður fyrir það. Þessa upphæð má svo hækka en ekki er endilega ráðlegt að upphæðin fari yfir 20.000kr. Þessa peninga má líta á sem dauða peninga. Vextir eru lágir á launareikningum og peningarnir ekki nýttir til neins. Það sem þessir “dauðu” peningar gera er hins vegar heilmikið.
1) Þú ferð aldrei yfir á debetkortinu því þú ert nú með þitt eigið núll og ef þú ferð niður fyrir þína völdu upphæð, þá leggurðu inn fyrir því og þarft ekki að hafa áhyggjur af FIT kostnaði bankana.
2) Ef þú lendir í smávægilegum aukaútgjöldum sem alltaf eiga sér stað af og til. Vettlingar týnast í leikskólanum, eitthvað sem þú kaupir reglulega hefur hækkað osfrv. þá áttu allavega pening fyrir því.
3) Að vera með sinn eigin núllpunkt veitir auk þess mikla vellíðan, að eiga pening og vita að hann er ekki að fara í neitt.